24.10.2008 | 16:44
Hættu þessu nöldri Steingrímur
Eilíf ansvíllans neikvæðni og múður. Þú ert bara leiðinlegur svona nöldrandi endalaust. Mig grunar að þessi aðgerð sé ekki alveg vonlaus þar sem þú kveður ekki fastar að orði en svo "að þú sér mjög hugsi". Það fer illa með sál og líkama að leita eftir skrattanum í hverju horni og sjá aldrei ljósglætu nokkursstaðar. Hugsaðu um heilsuna maður!
Reyndu heldur að líta á björtu hliðarnar og vera svolítið glaðlegur. Ég er viss um að það er, þegar til lengdar lætur, heillavænlegra til atkvæðaveiða. Og ég held líka að þú sért, undir niðri, hreint ekki eins leiðinlegur og þú lætur.
Ábyrgðin er ríkisstjórnarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þau eru alveg sérstök þarna í VG. Maður er hættur að vera hissa.
Þórdís Bára Hannesdóttir, 24.10.2008 kl. 17:05
Gott og vel. Ég er þá hættur að nöldra. Mikið er annars fallegt til sveita í Árnessýslu. Og ljúffengt af heimaslátruðu þar víða.
Steinhættur J. Sigfússon (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 18:11
Hahahahahahahahahaha
þú ert best
Helga Krónprinsessa (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 23:05
Einar alltaf jafn hress;)
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 25.10.2008 kl. 00:13
Hey!...ég var að klára lopavestið...ójé , þrjú kvöld!
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 25.10.2008 kl. 00:14
Sammála með Steingrím - og bara VG yfir höfuð. Ekkert nema neikvæðnin og nöldrið. Hvernig nennir fólk að lifa svona? Mér er bara spurn.
Josiha, 25.10.2008 kl. 18:54
Það verður einhver að vera á móti öllum, alltaf.
Þú ert fjandi dugleg, Guðbjörg, prjónað í kapp við þrasið!
mýrarljósið (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 22:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.