OMG! Verðum við að færast 30 ár aftur í tímannn í lífsgæðum?

Krakkarnir í skólanum spyrja mig stundum þess dagana um eitt og annað sem snýr að kreppuárunum fyrri.

Hvenær fannst þér mesta kreppan? Var það 1930 eða 1914? Hvað fékkstu að borða þá?

Ég verð að valda þeim vonbrigðum og segja að því miður muni ég ekki það sem gerðist þessi ár, ég var einfaldlega ekki fædd þá. En þessi upphrópum fréttamanns - eða konu - með lífskjörin fyrir 30 árum gengur heldur ekki upp. Ég man ekki betur en allt léki hér í lyndi á þeim tíma. Það var hins vegar fyrir tæpum fjörutíu árum sem heldur var fátt um fína drætti og eiginmaðurinn fór til Svíþjóðar til að vinna í skipasmíðastöð.

Hann var þó ekki verr settur en svo að hann sagði upp vinnu til að fara þangað. Mig minnir samt að "lífsgæðin" væru á þeim tíma síst verri en í nútímanum. Spurning hvernig þau gæði eru metin.

En fyrir um það bil þrjátíu árum  man ég að áin hér leit svona út síðsumars. Ég átti stígvél á þeim tíma = síst verr stæð þá en núna, og ég óð útí eyju. Reyndar gekk ég þangað nærri þurrum fótum, ásamt "ljósinu" viðhengi hennar og nokkrum börnum sem við áttumScan10008Scan10010.  Þann dag var gaman - það voru lífsgæði.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Já eins og ég sagði í mínu bloggi rétt áðan við höfðum það gott fyrir 30 árum. Góðar myndir eins og alltaf hjá þér. Á engin stívéfl í dag en átti þá

Jórunn Sigurbergsdóttir , 9.10.2008 kl. 20:56

2 Smámynd: GK

Þrjátíu árum? Ég var ekki tveggja ára þegar ég óð út í Jórukleif...

GK, 10.10.2008 kl. 21:54

3 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Æ--Guðmundur- á því árabili. Ég man ekki daginn. kv.

Helga R. Einarsdóttir, 11.10.2008 kl. 20:24

4 identicon

Ha ha, og ég var ekki ungabarn :o)  en ég man vel eftir þessu.   Ég giska á að ég hafi verið svona 7-8 ára þannig að árin eru rétt rúmlega 20.

 Já, við Guðmundur viljum hafa þetta á hreinu ... ha ha ha

Helga litla (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 13:07

5 identicon

Smámunasemi erþetta!

Þetta var í byrjun September og árið var ca. 198? kannski3eða4

mýrarljósið (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 18:42

6 identicon

Mig langar heim

Helga Guðrún (IP-tala skráð) 13.10.2008 kl. 22:17

7 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Það styttist nú í það að þú komir og þá verður voða gaman að hafa verið í útlöndum. Það fá ekki allir tækifæri til þess og á næstunni verður líklega erfitt að komast til útlanda yfirleitt. kyss og kremj. amma .

Helga R. Einarsdóttir, 14.10.2008 kl. 12:39

8 identicon

já, það er satt.. hlakka til að sjá þig :*

Helga (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 02:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 196836

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband