31.3.2009 | 17:58
Gjaldeyrir til utanlandsferða í anda 2007
Ef rétt og satt er, sem mér er sagt, að ég gæti fengið hálfa milljón króna í gjaldeyri, til að fara með í helgarferð til Boston. Og svo ef mér dytti í hug að fara aftur í næsta mánuði, eða þá kannski til London, mætti ég fá annað eins. Og svo áfram mánaðarlega ef ég ætti fyrir því. Hvers konar óráð er þetta ef rétt er? Ég hef nokkrum sinnum farið til útlanda til lengri og skemmri dvalar, en aldrei eytt neinu í nálægð við þessra tölur. En ég er nú líka bara "venjulegt fólk" eða það held ég. Þetta eru ekki gjaldeyrishöft, heldur gengdarlaus mokstur, enda reglurnar sennilega settar af einhverjum þeirra sem hafa ruglast í ríminu - svona 2007 fólki.
Gjaldeyrisfrumvarpi dreift | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
500.000 per ferð er fyllilega raunhæf í sumum tilvikum - hins vegar eyða nú margir mun meiru, því ekki eru hömlur á kreditkortanotkun erlendis.
Púkinn, 31.3.2009 kl. 18:16
Vandamálið er bara að upphæðin er föst og ekki er tekið tillit til eðli ferða eða lengdar. Til dæmis finnst mér nokkuð raunhæft að árslangar heimsreisur kosti ansi mikið þó maður eyði aldrei neinu í námunda við 500.000kr í helgarferð til einhverrar borgar.
Arnór (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 18:45
Jamm, og svo kostar þetta nú nokkuð, frænka góð, eins og gengið er núna!
Kv. í bæinn.
Sigurður Hreiðar, 31.3.2009 kl. 22:14
Ekki þarf ég ýkja mikið.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 2.4.2009 kl. 21:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.