6.2.2009 | 17:48
Tal - Síminn - Vodafón og allt hitt
Ég hef aldrei skilið hverig mönnum dettur í hug að öll þessi fyrirtæki geti þrifist hér á okkar litla landi. Helst dettur mér í hug að hugsunin á bak við stofnun svona félags sé að farga öðru í sama rekstri. samkeppni er nauðsynleg, en er ekki stundum farið of geyst?
Og eins allir þessir bankar og önnur fyrirtæki sem eiga að þjóna fólki.
Þarna er ekki um neina framleiðslu verðmæta að ræða - eða er það?
Kannski héldu einhverjir að hægt væri að búa til peninga í bönkunum, en ég veit ekki hvað væri hægt að búa til í fjarskiptafyrirtækjum, ekki framleiðum við símana?
Kannski þrífst þetta af útflutningi - en hvað er þá flutt út?
Ég er nú svo vitlaus að ég veit það ekki. En ég veit að við - sem eigum að nota þjónustuna og standa undir öllum þessum rekstri - sem er nú ekki ódýr - við erum bara 300.000, eins og starfsmennirnir í meðalstóru iðnaðarfyrirtæki úti í Evrópu.
Fyrirtæki sem kannski býr eitthvað til.
Ný stjórn Tals kosin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.