18.1.2009 | 21:29
Dróg?
Ég efast um að þetta eigi að skrifa svona í þessu tilfelli. Dró væri viðkunnanlegra.
En ef ég væri að fara á hestbak á morgun gæti vel verið að sú ferð yrði farin á bölvaðri dróg.
Dróg sig til baka úr ritaraslagnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Helga, takk fyrir að sinna áhugamáli MÍNU :)
Eygló, 18.1.2009 kl. 21:36
Hæ Eygló! Meinarðu þá hestamennskuna eða málfarsráðgjöfina?
Helga R. Einarsdóttir, 18.1.2009 kl. 22:11
Ha ha ha, átti nú við skrif um málfar. Annars var ég einu sinni dágóð tómstundahestakona en ekki þekkti ég þetta orð. Alltaf gaman að læra : )
Eygló, 19.1.2009 kl. 01:31
Til að blanda mér í umræðun:
Eitt sinn sagði maður nokkur að haldinn yrði fundur/móttaka með mökum og þá varð ofanskráðum lesanda á að spyrja "verður sérstakt herbergi fyrir þau"? - Þetta þótt téðum manni ekki fyndið.
En það er dásamlegt og um leið rétt kristilegt (finnst svo gaman að nota þetta) - að einhver málglöggur einstaklingur skuli vekja svona skemmtilega athygli á hestamennsku málfarsins. Þar er orðið fullmikið af grófum brokkurum, heyrist mér.
Skemmtileg dæmi síðar
Helga Ág.
Helga Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 14:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.