7.8.2008 | 19:04
Hvar er þessi auglýsing - ég veit um viðskiptavin
Já - ég sá það í dag með eigin augum að hér á Selfossi vantar verulega svona konur - eða bara menn - hvort sem er gerir sama gagn.
Ég var á ferð í úthverfi bæjarins og sá þá litla stúlku á bleiku hjóli. Hún hjólaði ákveðin í átt að miðbænum. Svo vildi þannig til að ég átti erindi í búð og var þar við innganginn þegar sú stutta siglir þar á fullri ferð uppað húsinu. Leggur hjólinu fyrir dyrnar og gengur inn. Nú var ég orðin verulega forvitin og leit í kringum mig eftir einhverskonar "fylgdarmanneskju", mömmu eða barnapíu eða bara einhverju. Stelpan var örugglega ekki eldri en þriggja ára, en ég sá enga mömmu. Svo elti ég hana inn í búðina. Hún gekk hiklaust að svona nammistandi sem er þarna, margar skúffur fullar af nammi. Hún tók poka, sem blessunarlega var í neðstu hillu og svo skófluna og byrjaði að moka í pokann. Allt varð það að vera úr neðstu hæð, hún náði ekki hærra. En það dugði vel og pokinn varð fljótlega vel hálfur. Svo skilaði hún skóflunni, leit aðeins á innihaldið í pokanum, virtist vel ánægð með það -og labbaði út! Ég horfði á eftir henni. Hún tók hjólið steig á það og hjólaði sömu leið og hún áður kom. Ég fylgdist með henni yfir götur og gangbrautir, hún virtist alvön svona ferðalögum. En hún var þó á hjálpardekkjum.
Fylgdardama býður Íslendingum þjónustu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Guðrún kom við hjá mér áðan og sagði að hún hefði fylgt dömunni heim. Sú stutta stoppaði nokkru sinnum á leiðinni og gæddi sér á gómsæti sem aldrei stóð í henni, en Guðrún fékk ekkert. Daman rataði heim sem var btw í HÓLAHVERFI! Guðrún sagði mömmunni sólarsöguna og sá þær svo í Horninu, líklega að borga frekar en að bæta á... þannig að hún fékk allavega fylgdardömu aðra leiðina .
P.s. sú litla heitir Helga, þannig að þetta uppátæki...eða þessi sjálfsbjargarviðleitni kemur mér ekki á óvart
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 7.8.2008 kl. 20:46
Hæ Helga.
Getur þú sagt mér hvað tréið í garðinum hjá mömmu og pabba heitir sem er með stóru "túttuberjunum" á á haustin?? Mamma gat ekki alveg frætt mig á því!
Kveðja
Berglind
Berglind Haf (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 22:36
Ef þú meinar þetta sem er í horninu við pallinn þá heitir það Úlfareynir og ég skal gefa þér eitt eða tvö ef þú kemur í heimsókn.
Ef það er eitthvað annað þá hef ég misst af að finna það. kv.
Helga R. Einarsdóttir, 7.8.2008 kl. 22:49
Þetta kallar maður sjálfsbjargarviðleitni Ákveðin ung stúlka þarna á ferð.
Rannveig Bjarnfinnsdóttir, 7.8.2008 kl. 23:14
Það er einmitt það!
Ég var að fá eitt sem er búið að vaxa og dafna í stéttinni á bakvið hjá þeim. Það er farið að sá sér sjálft!!!
Kveðja
Berglind
Berglind (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 11:05
Dugleg sú litla.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 8.8.2008 kl. 19:43
Viltu bítta á Úlfareyni og einhverju sem ég á?
Hún verður einhverntíma góð sú stutta!
mýrarljósið (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 20:43
Þú átt hjá mér úlfareyni - manstekki - í vor.
Þú mátt fá hann þegar þú vilt- stálhraustur í potti bakvið hús.
kv.
Helga R. Einarsdóttir, 10.8.2008 kl. 21:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.