16.5.2009 | 23:10
Bara flott og það er gott
Spurt er: Af hverju gekk okkur svona vel? Jóhanna var góð, lagið var gott, allir gerðu vel. Kannski hjálpaði hvalurinn líka, eða tunglið, eða hrunið? Allir vilja vera góðir við okkur? Hvað veit maður hvernið fólkið í útlöndum hugsar?Sigmar var líka góður og Bretarnir eru að skammast sín. Þeir gáfu okkur stig. Til hamingju Ísland.
Og til hamingju Noregur, það voru fimm Norðmenn hjá okkur í kvöldmat og þeir voru ekkert nema kæruleysið. Sögðu að strákurinn væri ekki einu sinni norskur og fóru áður en úrslitin voru ljós. En við fengum það loforð (líklega fyrir góðan mat) að ef við myndum vinna skyldu þau lána okkur svo við gætum byggt "júróvisjón höll".
Það er gott að eiga góða að.
Langt fram úr mínum vonum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já, það er sko gott að eiga góða að
Josiha, 17.5.2009 kl. 22:23
Ekki víst að fólk í útlöndum sé alltaf að hugsa um þetta en Ísland hefur verið mikið í fréttum undanfarið var mér sagt í Þýskalandi. Þaðan kom ég á föstudaginn.
Bið að heilsa þér ég er víst ofðin eins og hvítur hrafn á blogginu.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 19.5.2009 kl. 20:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.