5.9.2008 | 20:59
"Það er svo undarlegt - með fréttamenn"
Kannski var það í kvöldfréttum útvarps? Veit það ekki.
En annars hef ég ekki heyrt orð um þetta stóra tjón í nokkrum fjölmiðli. Samt er þetta áfall, tjón og stórskaði fyrir Ístak, og yfirleitt leiðist nú engum að senda svoleiðis fréttir út á öldur ljósvakans.
Manni gæti stundum dottið í hug að fréttir frá löndunum sem næst okkur liggja þyki af einhverjum ástæðum "engar fréttir", þar gerist að minnsta kosti ákaflega lítið fréttnæmt. Reyndar var ein frá Svíþjóð í kvöld, dæmigerð fyrir fréttamat okkar manna, misþyrmingar á minnimáttar - spennandi?
Það væri gaman ef einhver vildi segja mér hvernig fréttir berast til landsins frá útlöndum?
Er leitað eftir þeim, og hvers vegna þá helst frá fjarlægustu löndunum, eða koma þær bara í frjálsu flugi án þess að eftir sé leitað og engin leið að verjast?
Eldur í húsi Ístaks á Grænlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já, alveg merkilegt, þetta gerðist eldsnemma í gærmorgun, s.s. 5. sept. og einn sem ég þekki þarna hringdi í mig í gær og þetta var sko enginn smá bruni, öll vinna hálflömuð og rétt svo náðu í gær að hafa rafmagn á campinu. Og svo var ég alltaf að leita eftir þessu í gær á fréttamiðlum og skildi ekki neitt í neinu.
Gestur (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 18:18
Vá hvað ég er útúr.. verð að fara að hlusta á fréttirnar á netinu eða eitthvað, er búin að missa öll tengsl við umheiminn því við erum ekki einu sinni með skoskar fréttir því sjónvarpið spilar bara dvd myndir, virkar ekki loftnetið eða eitthvað..
sakna þín :*
Helga Glasgowska (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 01:17
Klukk, Helga mín.
Sigurður Hreiðar, 8.9.2008 kl. 10:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.