Er það ekki bara allt í lagi?

Eins og fréttir í ljósvakamiðlum eru þessa dagana væri kannski bara allt í lagi að sleppa þeim? "Allt vont, ekkert gott", eins og maðurinn sagði, en það var nú reyndar um það sem á boðstólum var þegar hann mætti að matarborði.

Barlómur, svartsýni, vol og væl, það er fátt annað í boði og ég held að við landsbyggðarfólk myndum bara lifa jafngóðu lífi þó við bjástruðum við vandamálin í friði. 

Og úr því ég er byrjuð, í gær var verið að velta sér uppúr þjálfara og dómaravandamálum í sjónvarpinu, og þáttur fréttamanna kom til tals.  Það er alveg rétt, þeirra sök er nokkuð mikil. Þeir yrða helst ekki á nokkurn mann án þess að leita eftir leiðindum og eru allra áhugasamastir ef árekstrar hafa orðið. Það er nú bara þannig og væri nær að reyna að sjá ljósið í myrkrinu og gera gott úr málinu, en ekki eilíflega egna til frekari ýfinga.

Og hana nú! 


mbl.is Landsbyggðarfréttum fækkar hjá Ríkisútvarpinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband