"Ég er vinsæl og veit af því"

Þess vegna kemur mér ekki á óvart að ég fæ nú allmargar óskir um "vinasamband". Ég bið ykkur að taka það ekki illa upp, en ég hef ákveðið að halda þessháttar samböndum innan fjölskyldunnar. Mér hættir svo til að taka hlutina alvarlega og vil gjarnan gera vel við vini mína. Það gæti orðið til þess að ég færi að leita ykkur uppi, koma í heimsóknir eða senda smákökur fyrir jólin, ég hef bara ekki tíma í þessháttar núna. Sjáum til eftir starfslok, það er nokkurra ára bið. 

Það eru annaskipti í skólanum núna. Í dag var foreldradagur, þá komu foreldrar með börnunum að tala við kennarana og sækja vitnisburði. 

Ég fékk líka vitnisburð í dag. Ég fer reglulega til læknis sem reynir allt hvað hann getur að finna hjá mér einhverja kvilla, en gengur lítið. Auðvitað sem betur fer. Ég er búin að gera þetta í nokkur ár og ekkert er að mér. Kannski er illa farið með dýrmætan læknatíma með þessu, en það verður að hafa það. Í dag eins og áður labbaði ég hróðug út með "hvítan miða". Ef þið hafið aldrei farið með bíl í skoðun þýðir það fulla skoðun, ekkert að.  Ef eitthvað þarf að laga er miðinn grænn og í versta falli, þegar druslan er algerlega í rusli fær hún rauðan miða. En ég vona að það líði nú mörg ár þangað til ég lendi í því.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Til hamingju með hreystið.

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 14.11.2006 kl. 22:32

2 Smámynd: GK

Já, ég þyrfti að fara í skoðun...

GK, 14.11.2006 kl. 22:51

3 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Til hamingjumeð að hafa svona góða heilsu Helga mín. Auðvitað virðum við hin það að þú viljir ekki vera í "vinaklúbbnum". Það sem ég sé samt gott við það er að við getum fylgst betur með því hvenær uppáhaldsbloggararnir okkar blogga.

Bestu kveðjur Jórunn

Jórunn Sigurbergsdóttir , 15.11.2006 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband