12.11.2006 | 20:34
Dansað í "vitlausu veðri"
Á föstudaginn þegar við vorum að búa okkur undir að fara á myndakvöldið hjá Karlakórnum spáði veðurstofan vitlausu veðri. Ekki létum við það hafa áhrif á okkur og fórum galvösk á staðinn, með það í huga þó, að komið gæti til þess að við þyrftum að gista en það gerði ekkert til. Myndasýningin var fín og svo byrjaði ballið með miklu fjöri. Nú orðið eru tækifærin of fá sem maður fær til að spretta almennilega úr spori, meira lagt uppúr bjórdrykkju á pöbbum, en því bara nenni ég ekki. Maður verður að fá sæmilega hreyfingu með. Það fór nú svo að veðurstofan tapaði, það varð ekkert vont veður og allir komust heim til sín einhverntíman um nóttina. Í gær varð ég svo að taka út fyrir því sem afrekað var í dansinum, harðsperrur í öllum limum. Það var nú eitthvað annað á árunum áður þegar ég fór í Þórskaffi sex kvöld í viku, þá voru aldrei aumir vöðvar.
Svo fórum við í morgun til Reykjavíkur í skírnina hennar Unu. Á eins árs afmælinu var hún loksins formlega skírð, í barnamessu í Laugarneskirkju. það er gaman að vera við skírn hjá svona stóru barni. Hún fylgdist með því sem fram fór og skoðaði allt í kringum sig. Lítil börn missa alveg af þessu, spurning hvort ekki ætti bara að skíra þegar þau eru svo gömul að þau geti munað eftir athöfninni. Það væri örugglega skemmtileg minning að eiga. "Þegar presturinn jós vatninu yfir mig".
Nú verður kannski næstu vikur smáfriður fyrir pólitískum sneplum í forstofunni, en jólaáróðurinn kemur þá bara í staðinn. Um prófkjörin hef ég svo sem ekkert að segja. Af hverju er rótgrónum þingmönnum hent út? Er þetta ekki bara eins og á öðrum vinnustöðum, þeir eru endurráðnir sem vinna vinnuna sína? Þegar einhver þykist viss um að halda "sínu" sæti er hann kominn í djúpan sk--. "Ég ætla að gefa sætið mitt eftir" er fáránleg setning. Þú "átt" ekkert í þessu sæti vinurinn. Í heildina finnst mér þessi prófkjör hafa einkennst af fátækt, það vantar tilfinnanlega fólk sem mann myndi "langa" til að kjósa. Væri jafnvel tilbúinn til að ganga í einhverja flokka til þess. Ég hef heyrt að maður geti gengið í marga flokka í sömu vikunni ef manni sýnist svo.
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
En þá er maður stimplaður og það vill maður ekki.
Til hamingju öll með Unu litlu, það er er ólíkt skemmtilegra að tala um.
mýrarljósið (IP-tala skráð) 12.11.2006 kl. 22:48
Jórunn Sigurbergsdóttir , 13.11.2006 kl. 17:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.