Er nágranninn að negla fyrir gluggana?

Þegar ég fór út áðan heyrði ég áköf hamarshögg handan við götuna. Getur verið að veðrið verði svo vont að maður ætti að setja hlera fyrir glugga? Ég vona ekki, en geri þó ráð fyrir því að ég verði fljót á leiðinni í skólann á morgun. Það á nefnilega að vera suðaustan átt og það hentar mér ágætlega, þá bara fýk ég beint í skólann. Svo í hádeginu á hann að snúa sér í suðvestan og það er líka fínt - ég fæ þá sömu þjónustu hjá veðurguðunum á heimleiðinni. Þetta hefur verði frekar annasöm vika. Það var aðalfundur kvennaklúbbs karlakórsins á þriðjudag, af því ég er formaður varð ég að halda ræðu og stjórna fundi, og líka útbúa brauðrétt handa kellunum með kaffinu. Svo í gær fór ég í vinnuna aftur kl. 5 og var til 9.30. Það var nefnilega verið að sýna leikrit 10. bekkjar - tvær sýningar. Það tókst bara furðu vel,sennilega mesta lánið hvað krakkarnir voru lítið stressuð þó ekki væri alveg allt eftir bókinni. "Hva me þa"? áhorfendur vissu hvort sem ekkert hvernig textinn er í handritinu.  Og þessi sem datt afturyfir sig útaf sviðinu meiddi sig ekkert að ráði, og svo fengu allir kökur og svala á eftir. Hvað er hægt að hafa það betra?

Á morgun- ef veður leyfir er svo myndakvöld hjá karlakórnum og þar er alltaf gaman. Reyndar skiptir engu hvernig veðrið verður, við komumst þangað einhvernvegin og svo förum við þá bara heim þegar lægir. En á Sunnudaginn þarf að vera fært til Reykjavíkur af því þá förum við snemma dags þangað til að vera við skírnina hennar Unu. Hún er líka eins árs þann dag.  Og hún er búin að heita Una allt þetta ár af því hún fæddist úti í Ameríku. En það verður auðvitað að skíra hana almennilega með vígðu vatni og presti.

Og svona að síðustu. Hún dóttir mín er komin frá Kaupmannahöfn, Hún fékk sér ekki tattú í þetta sinn og á laugardaginn var hún ekki á krá þar sem gestir voru skotnir eins og gæsir á hausti.   Farið varlega i vonda veðrinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Það er nóg að gera hjá þér. Hefði ég hatt , tæki ég ofan fyrir þér. kveðjur Jórunn

Jórunn Sigurbergsdóttir , 9.11.2006 kl. 22:18

2 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Fjúktu varlega...vertu nálægt staurum svo þú getir faðmað þá þegar rokið hrindir þér í 50 metr. hviðunum.

Skildún verða skírð Una?

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 9.11.2006 kl. 23:36

3 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Ég skal reyna að passa mig. Ég banka þá bara uppá í einhverju húsinu eins og ég sagði ykkur að gera. Ætli hún hljóti ekki að fá að halda nafninu? Góða nótt, mamma.

Helga R. Einarsdóttir, 9.11.2006 kl. 23:44

4 Smámynd: Josiha

Já tek undir með Guggu - fjúktu varlega!

Josiha, 9.11.2006 kl. 23:50

5 identicon

Allur er varin góður og er ekki bara rétt að negla fyrir alla glugga svo maður þurfi ekki að horfa á þetta leiðindar svarta veður??

Pálína Vigdís Sigtr. (IP-tala skráð) 10.11.2006 kl. 09:11

6 identicon

Það er æðisleg í svona veðri!  Þú fýkur ekki fyrr en í 40 metrum en keyrðu varlega!

mýrarljósið (IP-tala skráð) 12.11.2006 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband