5.11.2006 | 21:20
Tengdadóttir á hrakhólum
Enn er hún Binna ekki komin í leitirnar. Að hún lenti í Glasgow í morgun er næsta víst, en nú eru farnar að koma vélar þaðan en engin Binna. Það verður bara að bíta á jaxlinn og bíða eftir næstu vél.
Á meðan ætla ég að rifja upp þegar ég fór í fyrsta sinn í flugvél til útlanda. Það var á Skeiðaréttadaginn þegar ég var 18 ára gömul. Ég hafði fengið skólavist í lýðháskóla í Guðbrandsdalnum í Noregi. Skólinn var byrjaður, en ég hafði fengið að fresta því að mæta. Af óviðráðanlegum ástæðum, var það látið heita, en ég bara varð að komast í réttirnar, en samt aðallega á móti safninu, þar hafði mig aldrei vantað.
Foreldrar mínir keyrðu mig til Reykjavíkur og á flugvöllinn þar. Þá var enginn Keflavíkurflugvöllur til, nema fyrir herinn. Auðvitað táraðist ég svolítið þegar ég kvaddi þau, ég var búin að ákveða að vera í heilt ár að heiman og það er langur tími í lífi unglings.Lítið man ég eftir ferðinni, nema að það var lent í Bergen og allir reknir úr vélinni. Líklega kaffitími hjá flugmönnunum. Ég fór út eins og aðrir og elti svo einhverja röð þangað til ég var stöðvuð. Einhver kerling leit á miðann minn og benti mér svo hvert ég ætti að fara. Ég leit í kringum mig og sá þá að þarna var allt merkt SAS, svo líklega hefði ég lent til Svíþjóðar ef ég hefði haldið mínu striki. Svo var eftir kaffið haldið áfram til Óslóar og þar átti ég þó örugglega að fara úr. Þarna í flugstöðinni átti ég að hitta konu sem hafði tekið að sér að geyma mig yfir nóttina, en það kom engin kona. Enginn þarna sýndi mér minnsta áhuga. Á endanum voru allir farnir úr salnum nema ég. Sitjandi á bekk á miðju gólfi beið ég heila eilífð - fannst mér.
Ekki man ég eftir að ég væri verulega áhyggjufull. kannski var það sveitamennska, en ég trúði því bara statt og stöðugt að þessi kona myndi á endanum koma. Hún gerði það líka og baðst margfaldlega afsökunar á töfinni. Ég skildi hana alveg, samt kunni ég ekki orð í norsku. Ég var svo hjá mömmu hennar um nóttina. Mamman var gömul og var með vinnukonu sem var líka eldgömul. Þar fékk ég púrrulauk soðinn með smjöri og kartöflum í kvöldmatinn. Næsta dag fór svo vinnukonan með mig á brautarstöðina og kom mér í lestina sem flutti mig til Ringebu í Guðbrandsdalnum.
Þetta varð gott ár. Þá var tæknin ekki til vandræða og aðeins einu sinni allan tímann var hringt til mín að heiman. Á afmælinu mínu. Ég var í tíma niðri í íþróttahúsi og þangað kom sprengmóður strákur til að sækja mig. Það mátti segja að allur skólinn væri í uppnámi útaf þessu símtali frá útlöndum. Ég man nákvæmlega hvar ég talaði í símann, við mömmu, sem hafði þurft að fara fram að Galtafelli til að fá símasamband við Noreg. Símstöðin var þar. Krakkarnir voru allt í kringum mig og sperrtu eyrun. Að heyra íslensku talaða lengst uppí Guðbrandsdal gerðist ekki á hverjum degi. Ég kom heim eftir árið, daginn áður en safnið kom af fjalli. Ég gat farið á móti eins og venjulega og fjallkarlarnir voru glaðir að sjá mig þá.
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 197569
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vona að Binna sé komin. Kv. J
Jórunn Sigurbergsdóttir , 5.11.2006 kl. 22:24
Nú er klukkan rúmlega 1/2 11 og Binna er komin í leitirnar. Hún kom með síðustu vél frá Glasgow.
Helga R. Einarsdóttir, 5.11.2006 kl. 22:38
Maður þarf að tékka sig reglulega inn hérna... Ég er á mínum stað... :-)
GK, 5.11.2006 kl. 22:51
Gott að heyra að Binna sé komin.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 5.11.2006 kl. 23:48
Ég er líka komin
...fékk mér ekki annað tattoo,og fór að sjálfsögðu ekki á neinn bar til að verða skotin,alveg satt.Við vorum alltaf komnar í koju kl. 22,enda skíthræddar við mellurnar og allt sem þeim fylgdi
á Estegade...þar bjuggum við nebbla.
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 9.11.2006 kl. 00:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.