Fjölskyldar á ferð í vitlausu veðri

Ástandið er ekki gott. Börnin mín og barnabörnin eru út um allar trissur í þessu fúla veðri. Einar var fyrir stuttu undir Hafnarfjalli með dætur sínar tvær. Binna er að sveima yfir Ameríku og á að lenda í Keflavík í fyrramálið á meðan stormurinn stendur sem hæst. Guðmundur er vonandi kominn yfir heiðna og heim til sín, það er ekki blankalogn í Svínahrauni núna. Hún nafna mín er að þjóna gestunum á Örkinni í kvöld. Það vill til að þar er nóg af rúmum ef ekki verður hundi út sigandi þegar störfum lýkur. Lárus slapp úr Reykjavík með Júlíu, en hann var hvass undir fjallinu. Hann skildi Ívar eftir í Hafnarfirði hjá ömmu Báru. Jóhanna og Dýrleif Nanna eru þær einu sem hafa haldið sig heima í dag - eða það vona ég. Og hún Guðbjörg einkadóttir mín er á tattústofu í Kaupmannahöfn með henni Vigdísi, hvernig sem það svo endar. Semsagt - familían er í algerri upplausn!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Þakka þér fyrir meistari góður. en veistu nokkuð um næturlífið í K.höfn þessa dagana?

Helga R. Einarsdóttir, 4.11.2006 kl. 23:04

2 identicon

Mér datt það í hug - Binna fauk til Glasgow og verður það óákveðinn tíma. 

ammatutte (IP-tala skráð) 5.11.2006 kl. 09:54

3 Smámynd: Josiha

Jú við vorum heima. Og Dimma líka.

Josiha, 5.11.2006 kl. 17:13

4 Smámynd: Josiha

Jú við vorum heima. Og Dimma líka.

Josiha, 5.11.2006 kl. 17:13

5 Smámynd: Josiha

Jú við vorum heima. Og Dimma líka.

Josiha, 5.11.2006 kl. 17:13

6 Smámynd: Josiha

Þetta átti ekki að koma svona oft!

Josiha, 5.11.2006 kl. 17:13

7 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

því oftar sem ég sé þig hérna Jóhanna, því betra. Nú held ég að allir séu á réttum stað. nema Guðbjörg. kv.amma Helga

Helga R. Einarsdóttir, 5.11.2006 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband