3.11.2006 | 20:10
Landsmót hestamanna á Þingvöllum
Sumarið ´62 var landsmót hestamanna haldið á Þingvöllum. Þangað fór ég ríðandi með Jóa í Hvammi. Fram Langholtsfjall, á vaði yfir Stóru- Laxá, yfir Iðubrú og svo Brúará við Spóastaði. Okkur fjölgaði á þessari leið, sveitungar, skeiðamenn og gnúpverjar slógust í hópinn, og svo tungnamenn líka. Þegar við fórum vestur með Mosfellinu og að Apavatni vorum við orðin nokkuð mörg. Frá Laugarvatni yfir Lyngdalsheiðina og komum síðla dags að Skógarhólum þar sem fjöldi var fyrir, bæði menn og hestar.
Emil í Gröf hafði flutt fyrir okkur tjöld og annan farangur og nú fékk ég fúsar hendur Bóa á Blesastöðum og Tryggva Sig, skólabróður míns frá Skógum, til að hjálpa mér að tjalda og koma mér fyrir. Þeir sváfu reyndar báðir hjá mér í tjaldinu um nóttina.
Við vorum ferðalúin og urðum engra veðra vör fyrr en við vöknuðum næsta dag í stórum polli eftir rigningarnótt. Eftir það var veðrið gott.
Á sunnudeginum var hópreið hestamanna og ég hafði gert ráð fyrir að ríða Skjóna mínum í hópi Smárafélaga, en einhverjir höfðu aðrar hugmyndir.
Mér var sagt að ég ætti að sitja Gust og vera fremst í hópnum á milli Jóa í Efra- Langholti og Ingvars á Reykjum. Þeir áttu báðir stóra rauða hesta svo þessir þrír voru ákaflega líkir, enda samfeðra. Ég var vel ánægð með þessa ráðstöfun og við Gustur bæði hin bröttustu þegar fylkingin hélt inn á völlinn með fleiri hundruð áhorfenda á báða vegu.
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.