2.11.2006 | 22:19
Þegar rotturnar dönsuðu
Það var ýmislegt sem við gerðum okkur til gamans á þessum árum. Það var haughús undir fjósinu í Hvammi og þar gátum við setið fyrir utan og horft inn.
Við sátum þar oft á þúfunum tímunum saman og fylgdumst með rottunum. Þær áttu þar heima í hundraða tali. Þær hlupu um haughúsið, hoppuðu og stóðu á afturlöppunum. Við sáum ekki betur en þær dönsuðu þarna um allt. Okkur fannst þetta hin besta skemmtun og ekki fannst okkur þær vitund ógeðslegar. En fullorðna fólkið var ekki hrifið. Það var á endanum eitrað fyrir þeim og þá fundum við þær hingað og þangað í kringum fjósið, steindauðar. Ekki fannst okkur það ógeðslegt heldur og jarðsungum þær með viðhöfn.
Áður en lauk áttum við stóran rottukirkjugarð skreyttan krossum og blómum.
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 2.11.2006 kl. 23:12
Þú ættir að heyra rottusögurnar úr Fljótshlíðinni, þær eru vægast sagt krassandi!
mýrarljósið (IP-tala skráð) 3.11.2006 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.