Á kappreiðar í Tungunum

Eitt  síðsumarkvöld var það ákveðið á balli í Félagsheimilinu Hrunamanna að fara ríðandi á kappreiðar Tungnamanna við Hrísholt daginn eftir.   þetta varð hópferð ungs fólks úr þremur sveitum,  Hrunamenn, Skeiðamenn og Gnúpverjar, sem við kölluðum  þá alltaf Eystrihreppsmenn.

Snemma á sunnudegi stefndi fólk að úr öllum áttum, sameinaðist á leið upp hrepp og fór yfir brúna við Brúarhlöð. Þaðan lá svo leiðin að Hrísholti,  og þar vorum við allan daginn. Það var ekki þreyta eða heilsuleysi í okkur eftir ball í þá daga. 

Þegar kappreiðarnar voru búnar héldum við af stað heim í stórum hóp, örugglega 50 manns með 100 hesta, og nú fórum við niður Tungurnar.

Það lá ekkert á og þegar við komum að Laugarási var orðið dimmt. Þar á veginum varð fyrir okkur eitthvað sem nærri lokaði leiðinni, svo hægt gekk góða stund. Þegar ég kom að þessum farartálma sá ég að þetta var pabbi á jeppanum sínum. Hann hafði tekið aftursætið úr og látið þar inn stóra mjólkurbrúsann sem kvenfélagið hafði útbúið sem kaffibrúsa. Hann var nærri eingöngu notaður til að hella á og selja kaffi á Álfaskeiði.

( en Álfaskeið er kapítuli fyrir sig)

Pabbi hafði hellt uppá brúsann við hver í Laugarási og bauð nú kaffi og líklega útí það þeim sem vildu.  Hann pabbi minn var ekki mikill hestamaður, en hafði einstaklega gaman af að veita öðrum og gerði það vel. Hann vildi líka gjarnan fylgjast með mér, hvað sem ég gerði og hvar sem ég var.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: GK

Afi sniðugur... góð saga.

GK, 2.11.2006 kl. 22:31

2 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Afi góður...sniðug saga.

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 3.11.2006 kl. 09:04

3 identicon

Varstu jafn mikið unglings-tryppi og dóttir þín, að það þurfti að fylgjast með þér, hvað  sem þú gerðir og hvar sem þú varst?

Einar Örn. S. Hallgríms (IP-tala skráð) 3.11.2006 kl. 21:01

4 identicon

Alla vega væri ég alveg sátt ef hún líktist mér, ég er ánægð með hana eins og hún er. En hvenær við höfum þá byrjað að líkjast man ég bara ekki?

ammatutte (IP-tala skráð) 3.11.2006 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband