Ágrip af ævi minni

Ég var víst ekki gömul þegar ég fór fyrst á hestbak, varla meira en eins árs hjá afa Hreiðari á Engi, látin uppá hest til myndatöku og man ekkert eftir því.

Svo um leið og ég gat setið sjálf fékk ég að sitja á Tanna, vagnhestinum í Hvammi. Hann var eingöngu notaður til dráttar, oftast fyrir vagn, og daglega var mjólkin flutt á þeim vagni upp að Grafarbakka.  Við vorum ekki alltaf stór eða sterk sem fluttum mjólkina, örugglega innan við tíu ára. Tanni rataði og á Grafarbakkahlaðinu var okkur hjálpað að setja brúsana upp á pallinn og þaðan á mjólkurbilinn. Svo voru tómu brúsarnir settir á vagninn, líka pöntunin frá kaupfélaginu, Mogginn og pósturinn. Þá gat Tanni snúið til baka með varninginn heim. Ef mikið var í ánni fannst okkur betra að sitja á baki, það gat flætt uppí vagninn, líklega vorum við þó ekki látin fara ein við þær aðstæður, en það var ofsalega spennandi.

Við notuðum Tanna reyndar fyrir reiðhest líka á þessum árum, hann fór aldrei hratt yfir og öllum var óhætt sem höfðu sæmilegt jafnvægi og gátu haldið sér í faxið.

Gamli Rauður var annar vagnhestur, og þessir tveir drógu sláttuvélina saman á sumrin. En Rauður var ekki eins barnvænn, gat átt það til að fara hraðar en til stóð.

Ég var líklega sjö eða átta ára þegar hann fór með mig í réttirnar við Túnsberg. Þá var Örn á Tanna og fór á viðeigandi hraða, en Rauður réði sinni ferð að mestu sjálfur og hljóp, allavega síðasta spölinn, á mikilli ferð og snarstansaði svo við réttarvegg.

Ég flaug framaf. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Eins gott að Ólafur Helgi var ekki komin með völd þá.

Nú hefur hann sett fram tillögu að fólk verði að gangast undir próf til að fá að sitja hest.

,,Eina reiðmennskan þar sem fólki er ekki bannað að vera undir áhrifum áfengis er sú sem er stunduð með öðru fólki,en að vera drukkinn þar þykir heldur ekki gefast vel "Ólafur Helgi Kjartansson-fréttablaðið 2 nóv. 2006.

Nú verða öll litlu börnin á reiðnámskeiðum stoppuð afog beðin um hestaskírteini...

Æææ ...

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 2.11.2006 kl. 21:57

2 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Þýðir þetta að það mega vera svona fjöldafyllerísútreiðar?...eða eitthvað annað

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 2.11.2006 kl. 22:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband