Pólitískar vangaveltur

Það komu pólitíkusar í skólann í dag. Þeir komu á kaffistofuna en ég var þá farin í tíma. Sem betur fer. Ég forða mér alltaf langt í burtu þegar svona gestir koma, ekki af því þeir séu vondir við mig, síður en svo, mér bara finnst eitthvað svo aulalegt þegar fullorðið fólk er að bera út boðskap og dreifa um sig loforðum sem það ætti að vita að engin leið er að standa við.

Í hvert sinn sem líður að kosningum þarf ég að gera upp við mig á hvaða lista sé vænlegast að krossa, ef ég á þá bara nokkuð að krossa. Mér hefur semsagt aldrei tekist að ná fótfestu í ákveðnum flokki. Þó held ég, svona undir niðri að ég sé töluvert pólitísk, en bara ekki þannig að ég gæti unað því að vera alltaf sammála einhverjum ákveðnum. Ég verð að geta haft mína skoðun á einu málefni í dag, sem er þá kannski líka skoðun Vinstri grænna, en á morgun væri ég alveg til í að styðja gáfulega hugmynd sjálfstæðismanna. Reyndar finnst mér Geir góður, ég segi kannski ekki "hot", en oft nokkuð "kool".  Mér finnst enginn þeirra sem vilja "þjóna" okkur Sunnlendingum vitundarögn "kool", jafnvel ekki þó þeir séu af Suðurnesjunum. Bjarni H. er reyndar sér á báti, maður tekur þó eftir honum. Hvorki "kool" eða "hot" þó, en eitthvað er við hann sem ég hef gaman af. Mig vantar semsagt orð yfir hann - fæ ég hjálp?

Þegar ég var lítil ( svona 10 - 12 ára), hlustaði ég alltaf á eldhúsdagsumræður, enda ekki margra kosta völ á þeim tíma. Núna nenni ég því alls ekki. Nú er þó hægt, sem ekki var þá, að lækka í sjónvarpinu og skoða bara klæðaburð og almenna hegðun þeirra fáu þingmanna sem eru í salnum. Þeir eru þar bara svo sárafáir, nenna ekki frekar en ég að sitja undir masinu.

Það var líka ég sem vakti fram á nætur með pabba pg fylgdist með talningu atkvæða í kosningum. Mamma og strákarnir voru löngu sofnuð, en við héldum út svo lengi sem mögulegt var. Á þeim árum vorum við pabbi sjálfstæðismenn, en mig grunar að afgangurinn af fjölskyldunni hafi hneigst til framsóknar, alla vega höfðu þau engan áhuga á glæsilegri útkomu okkar á viðreisnartímanum.

Áður en þessi vetur er á enda verða víst margar heimsóknir á kaffistofuna, og það er nú eitt, maður verður orðinn hundleiður á þessu öllu löngu fyrir páska .


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: GK

Bjarni er hvorki hot né kúl. Hann er kannski bara volgur.

GK, 31.10.2006 kl. 22:04

2 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Já, höfum það á meðan ekki býðst betra.  Bæði búin að kjósa, hvað er í verðlaun?

Helga R. Einarsdóttir, 31.10.2006 kl. 22:35

3 identicon

Bjarni er hvorki ho ho né kú (hestur eða kýr) .  Er hann þá ekki bara me me?  (sauðkind)

styrr stofuglamm (IP-tala skráð) 1.11.2006 kl. 11:16

4 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Kæri styrr, reyndu að læra að lesa orðin öll. Sumir komast kannski af með fyrsta atkvæðið, en þú ættir að vita hvað maður verður miklu fróðari og nýtur margs þegar maður hefur lært að lesa öll orðin til enda. Gangi þég vel í náminu. kv.ammatutte

Helga R. Einarsdóttir, 1.11.2006 kl. 12:39

5 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þú komst inn á eldhúsumræður. Man þá tíma að það vara bara útvarp og eldhúsumræður allt kvöldið. Þá var ég ekki glöð. víst ekki pólitískt þroskuð.

SmileBestu kveðjur Jórunn

Jórunn Sigurbergsdóttir , 1.11.2006 kl. 13:32

6 identicon

Helga, hvegnig vissigu að þetta vag ég?

styrr stofuglamm (IP-tala skráð) 1.11.2006 kl. 13:39

7 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Af því mér datt í hug að þú værir tilbúinn að senda öðrum tóninn án þess að þora að segja til nafns. En ef þú ferð í endurmenntun verður þér líka kennt að skrifa nafnið þitt. Verður það ekki gaman? Þú gætir sjálfur skrifað undir jólakortin!  Mér þykir miður að mér mistókst við eitt orð í síðasta kommenti. Það var óvart og meiningarlaust. Kannski ég fari sjálf í kvöldskóla?

Helga R. Einarsdóttir, 1.11.2006 kl. 14:21

8 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Mér finnst Bjarni doldið krúttlegur,gæti örugglega orðið lukkutröll sunnlendinga.

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 1.11.2006 kl. 18:36

9 identicon

Er hann ekki bara "hipp" ?

mýrarljósið (IP-tala skráð) 1.11.2006 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 197570

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband