30.10.2006 | 22:29
Vetrarfrí - var það frí?
Í fyrramálið má ég fara aftur í skólann eftir tvaggja daga vetrarfrí, föstudag og mánudag.
Ég notaði þessa daga vel. Fór í jarðarför á föstudag en hef svo verið heima að taka til í öllum skápum í húsinu. Ótrúlegt hvað þar var margt sem ég var búin að gleyma, það fór líka heilmikið á haugana. Í dag þurfti ég svo aðeins að útrétta, " gerði hreint fyrir mínum dyrum". Svo var ég líka að undirbúa upphaf vetrarstarfs hjá Kvennaklúbbi Karlakórsins. Hélt stjórnarfund í kvöld og svo er aðalfundurinn eftir viku. Ég á eftir eitt ár í formennskunni. Í gær kom Dýrleif Nanna í heimsókn og var hjá ömmu og afa í pössun smá stund. Hún er bara góð og er alveg sama þegar hún er skilin eftir.
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 197570
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ekki hentirðu einhverju? Ég hélt að það væri bannað...
Buxurnar passa...
GK, 30.10.2006 kl. 23:12
Henni er alveg sama að vera skilin eftir hjá YKKUR (og Guggu), en ég held að hún væri ekki eins sátt ef hún hefði verið skilin eftir t.d. hjá mömmu. Hún þekkir ykkur orðið svo vel að hún er alveg örugg hjá ykkur
Josiha, 31.10.2006 kl. 14:27
Kláraði Guðmundur greyið matinn sinn þegar hann var lítill ?
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 31.10.2006 kl. 15:10
Varst að prjóna buxur á lillann þinn?
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 31.10.2006 kl. 15:10
Nei Guðmundur, ég henti engu sem hægt er að nota. Guðbjörg, ef þú hefðir tollað lengur heima vissirðu hvernig borðhaldið fór fram á þeim tíma. Og ef þig vantar prjónabuxur til að nota í Köben get ég alveg prjónað fyrir þig einar, ég er eldfljót að því.
Helga R. Einarsdóttir, 31.10.2006 kl. 19:03
Hahahaha... ég kláraði alltaf matinn minn. Og var heima á matmálstímum.
GK, 31.10.2006 kl. 22:05
Ég skil þetta ekki. Guðmund vantar buxur og þú ætlar að prjóna fyrir mig?
Einar Ö. S. Hallgríms (IP-tala skráð) 1.11.2006 kl. 14:51
Það er ótrúlegt hvað þeir eru margir sem ekki kunna að lesa eða skrifa rétt mál. Haldiðekki að mér hafi tekist að misrita nafnið á honum syni mínum. Ég ætti þó að vita manna best að öll nöfn á að skrifa með stórum staf
Helga R. Einarsdóttir, 1.11.2006 kl. 15:06
Þetta er samt fyndið, hvað gat Einar annað gert en tjáð sig? Annars hef ég áhyggjur af því hvað þý tekur oft til í skápunum, ég held þú hafir ekki gert annað í sumar!
mýrarljósið (IP-tala skráð) 1.11.2006 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.