27.10.2006 | 18:43
Ég fékk lús!
Ég var að koma úr Reykjavík, fór þangað með mömmu í jarðarför. það var gömul góð kona sem var verið að jarða, ég man mest eftir henni þegar ég kom heim til hennar með foreldrum mínum fyrir fjöldamörgum árum. Það var fullt af fólki í kirkjunni og boðið í kaffi á eftir. Flestir voru þarna vel fullorðnir og mamma þekkti marga. Ég var með þeim yngri en þekkti þó nokkra, og furðu margir þekktu mig þó ég hafi ekki séð þá árum saman.
Á leiðinni heim var ég að spyrja mömmu útí nokkra sem ég ekki vissi hverjir voru en hún þekkti greinilega. Þar á meðal var karl, nokkuð gamall - allavega eins og mamma - sem hún hafði heilsað. "Æ - það er varla von að þú munir eftir honum" sagði hún. "Hann er af Skeiðunum og kenndi Skeiðakrökkunum sund í gömlu lauginni heima". "Hann hélt svo oft á þér með sér og leyfði þér að horfa á, það var þegar þú fékkst lúsina"! Hólí kræst! Hvað sagði konan?
Hingað til hef ég haldið því fram að engin lús hafi komið í minn haus, en verð nú víst að bakka með það. Það var þegar ég var tveggja ára og hárið enn svo þunnt, og þar að auki ljóst, að það var enginn vandi að finna þessa lús, sem var víst bara ein.
En það sem mér finnst merkilegast við þessa lús er - að hún kom af Skeiðunum.
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 197574
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Lúsin fer ekki í nanngreiningarálit. Ég var að uppgötva síðuna þína og mér finnst hún mjög góð. Bestu kveðjur Jórunn.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 27.10.2006 kl. 19:30
Þakka þér fyrir Jórunn, ég er lengi búin að fylgjast með þér og hef haft gaman af. kv.ammatutte
Helga R. Einarsdóttir, 27.10.2006 kl. 19:47
Til hamingju með að hafa fengið eina lús af Skeiðunum;)
Fengum við einhvern tímann lús? held ekki sko...
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 28.10.2006 kl. 00:14
Hahaha...fyndið að "heyra" þig segja hólí kræst :-D
Josiha, 28.10.2006 kl. 01:19
Hólí sjitt... hef ég fengið lús?
GK, 28.10.2006 kl. 19:49
Nei Guðmundur, þú hefur ekki fengið lús, alla vega ekki enn.
Mér finnst að hafi verið frekar lítið um þessi grey þegar þið voruð í skóla. Eða var bara á þeim tíma ekkert verið að gera veður útaf því þó ein og ein fyndist í skólanum? Alla vega þá komu þær aldrei hingað heim og ég fékk mér fyrst lúsakanb fyrir 2 - 3 árum þegar faraldur kom upp í skólanum, en það má nú heita árlegt.
Helga R. Einarsdóttir, 28.10.2006 kl. 22:44
Gaman að þegar mér dettur í hug að kíkja inn þá sé umræðuefnið smávegis tengt mér - Örugglega flott lús fyrst hún var af Skeiðunum! Ég sá einmitt núna um helgina gömlu laugina sem þú hafðir sagt mér frá - Kveðja Inga hans G....
Inga (IP-tala skráð) 30.10.2006 kl. 22:06
Gott að fá þig í heimsókn Inga. Þú hefðir átt að láta mig vita af ferðum þínum, þá hefði ég komið með til leiðsagnar. Hvort lýs af Skeiðunum voru á þessum tíma öðrum lúsum merkilegri veit ég ekki. Mér skildist á mömmu að hún hefði ekki barist lengi fyrir lífi sínu, sem ég trúi nú ekki að aðrir sveitungar létu á sig sannast.
Helga R. Einarsdóttir, 31.10.2006 kl. 12:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.