Hvað er svona leyndardómsfullt í Parísarborg?

Er hægt að þekkja mann af því sem hann les?

Hver er ég sem les lífsbaráttusögur  umkomulausra og minnimáttar? Dittu mannsbarn, Höllu og heiðarbýlið,  Híbýli vindanna og Lífsins tré. Hver er sá sem vakir  fram á nætur og sinnir varla öðrum þörfum af því hann fékk lánaðan allan pakkann af Ísfólkinu?

Og hver er ég sem hef ekki enn í dag vogað mér að biðja aldraða móður mína að lána mér svörtu þykku bækurnar tvær í efsta skápnum?

Forboðnar bókmenntir, gefnar út á fyrstu árum tuttugustu aldar: "LEYNDARDÓMAR PARÍSARBORGAR". Þær voru þar þegar ég var tólf ára og ég veit að þær eru þar enn. Bækur sem ég held að fjalli um  fýsnir og hrylling undirheima stórborgarinnar. Eitthvað svo hroðalegt að tók útyfir allt velsæmi á sjötta áratug aldarinnar sem leið, hvað sem núna yrði um það sagt. Ég þori ekki enn að rjúfa þennan ógnarlega og hrollvekjandi dularhjúp sem umlykur efsta skápinn. Kannski yrði ég fyrir vonbrigðum - er það þess vegna sem ég held aftur af mér?   Eins víst að rán, morð og nauðganir þess tíma hafi farið fram á hæverskari hátt en nú þykir hæfa.

Líklega best að ég láti þær eiga sig og baði mig áfram í þeim hríslandi hrolli sem fer um mig í hvert sinn sem ég renni augunum að skápnum. Þær eru þar enn.

Úr þessu er líklega ekki vert að angra mömmu með því að opinbera fyrir henni þessa nærri því ævilöngu þráhyggju dótturinnar um svörtu þykku bækurnar tvær. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Getur þú ekki bara rænt þeim að láni?

tæki hún eftir því?

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 26.10.2006 kl. 23:35

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Allar þessar bækur hef ég lika lestið og vakti einu sinni fram á nótt yfir þeim.Reyndar lsa ég ekki Ísfólkið. Leyndadóma Parísarborgar fékk ég á safninu á sínum tíma. Ég er ekki viss um að þær séu svo krassandi í dag. Bestu kveðjur Jórunn

Jórunn Sigurbergsdóttir , 27.10.2006 kl. 19:12

3 identicon

Lestu "Ilminn".

mýrarljósið (IP-tala skráð) 30.10.2006 kl. 10:09

4 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Búin að lesa Ilminn, mér fannst hún svosem ekkert spes. Kannski reyni ég aftur með öðru og betra hugarfari.

Helga R. Einarsdóttir, 31.10.2006 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 197582

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband