Var músin full eða hífuð?

Umræðan um samræmt próf í 4. bekk hefur vakið mig til umhugsunar um þær bókmenntir sem börnum hafa verið ætlaðar í gegnum árin.  Á miðri síðustu öld var til fullt af bókum sem enginn þurfti að skammast sín fyrir að lesa, sígildar og hollar barnabókmenntir.

Dísa ljósálfur, Bláskjár, Grimms ævintýri og fjöldamargar aðrar, svo mikið lesnar bækur að stórsá á þeim, slitnar og þvældar en stóðu fyllilega fyrir sínu.  Og nú er Dísa aftur komin á kreik ömmum og öfum til óblandinnar ánægju.

En nú bregður svo við að ég sé Dísu ljósálf í dulítið öðru ljósi en áður. Þegar ég hugsa útí það þá hef ég líklega við lestur þeirrar bókar í bernsku fengið svalað þeirri þörf sem ég hef síðar fundið fyrir öðru hvoru, þörf fyrir spennu hrylling og skelfingu. Hugsið ykkur bara! Hvað getur verið ógeðslegri athöfn en að klippa vængina af litlum ljósálfi?  Þó maður hugsi sér bara að maðkafluga fái þessa meðferð er það nógu slæmt, en lítill ljósálfur sem engum hefur ógnað - það er alveg skelfilegt.

Svo kom Bláskjár og þar var nú aldeilis ekki skafið af ósköpunum. Barnsrán, drykkjuskapur, manndráp og dimmar dýflissur morandi af rottum. 

Hans og Gréta: Heimilisofbeldi, útburður á stálpuðum krökkum, mannát og gamalmenni grillað í ofni.

Mjaðveig Mánadóttir: Útskúfað barn, drepið, saltað ofaní tunnu og étið af móður sinni.

Þessar lýsingar í barnabókunum góðu hafa augljóslega haft þvílík áhrif á mína ungu sál að þær eru enn á meðal minna skýrustu minninga.

Mér finnst alveg með  ólíkindum að nokkrum skuli detta í hug að leggja fyrir nemendur fjórða bekkjar teksta um drykkjuskap músa. Hvað er að hjá þessu fólki?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við vorum að plasta "Snúð og Snældu" í dag, frábærar bókmenntir. Svo er það xið.

mýrarljósið (IP-tala skráð) 26.10.2006 kl. 21:04

2 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Það verður að hafa það, þetta x er bara til vandræða. Er enginn drepinn í Snúði og Snældu? Merkilegt ef svo er ekki.

Helga R. Einarsdóttir, 26.10.2006 kl. 21:20

3 identicon

Nei í Snúði og Snældu er enginn drepinn en tilraun gerð engu að síður. En aumingja Snúður gekk í eign snöru, rétt dauður kallinn.

Kristjana H. (IP-tala skráð) 31.10.2006 kl. 00:09

4 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Gott að sjá þig  frænka mín. Ég er fegin að fá leiðbeiningar um bókmenntir og hollustu þeirra.

Helga R. Einarsdóttir, 31.10.2006 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 12
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 197582

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband