25.10.2006 | 19:49
Þegar ég lenti í lífsháska með ókunnugum manni
Það er ekki alltaf hættulaust að vinna í skóla. það fékk ég að reyna daginn sem ég fór að opna fyrir manninum sem kemur öðru hvoru að tékka á lyftunni. Eftir hádegi, allir komnir í tíma og ég var að leysa ritarann af. Hann kom og spurði hvort ég hefði lykil að lyftunni? Jú það hafði ég og taldi bara best að ég kæmi með honum niður til að opna fleiri dyr. Hvers vegna datt mér ekki í hug að bjóða honum kippuna að láni? Hvort sem það var gleði vegna nálægðar þessa ókunnuga karlmanns, eða af ósjálfráðri hjálpsemi, þá skildi ég við stöðu mína innan glers og fór með þessum svarthærða manni að lyftunni.
Ég opnaði með lykli, við stigum um borð og hann ýtti á hnappinn núll. Hann var með gleraugu og þar undir brún, eða eiginlega svört augu. Ekki benti það til norræns uppruna, hvaðan skyldi hann vera skroppinn þessi maður?
Það er ekki margt hægt að segja á stuttri leið lyftunnar niður í kjallara, þó einkennilega lengi sé hún að þokast síðustu sentimetrana. Þegar niður kom ýtti ferðafélagi minn á hurðina - eitthvað stóð á sér og hann ýtti aftur - fastar - og af öllum kröftum, hurðin haggaðist ekki. Þá ýtti hann á efsta hnappinn, við förum bara aftur upp - en ekkert hreyfðist. Við vorum föst í lyftunni!
ÉG fann að ég hvítnaði- og svitnaði um leið, enginn vissi af okkur þarna, hvað endist súrefnið lengi?
Innilokun er það versta sem ég veit, það flaug í hugann að ég gæti fengið æðiskast. Ég varð máttlaus í hnjánum og mér varð flökurt. Átti ég að hníga niður í einu horninu - eða í fangið á manninum? Ég vissi ekki einu sinni hvað hann hét.
Ég hef séð svona atriði í bíó, en það sem gerist í bíómyndum er allt leikið. Það getur ekki komið fyrir mig. Hann ýtti á takkana til skiptis en ekkert gerðist, enginn þeirra virkaði. hann ýtti á neyðarhnappinn, við heyrðum í bjöllunni en það heyrði enginn annar - það var enginn í húsinu.Hann tók upp gemsa, ég gleymdi að segja honum að þeir væru bannaðir í skólanum, en það breytti engu, við vorum á dauðum punkti sagði hann, síminn virkaði ekki. Ekki strax.
Svo kom í ljós að honum leið ekkert betur en mér og hafði þess vegna gleymt að kveikja á símanum.
Hann spurði mig hvaða númer hann ætti að velja? 1266 sagði ég - það var á tali.
Guði sé lof, hugsaði ég seinna, ætli þeim hefði ekki þótt skondið í Fossnesti að fá fá neyðarkall úr lyftu í skólanum.
Hann bað um annað númer, en ég kunni engin önnur - heilinn var tómur. Nú fann ég þó að fyrstu skelfingaráhrifin voru að hverfa, hnjáliðirnir skulfu ekki lengur og það var ekki að líða yfir mig. Líklega myndi ég sleppa við að gubba - hann var jú lyftuviðgerðarmaður. Ég ýtti á neyðarhnappinn fast og lengi, oftast var nú einhver á rápi á ganginum- en það heyrði það enginn.
Svo dró hann upp hníf - að vísu bara venjulega vasahníf. "Hann hefur örugglega líka séð svona myndir í bíó" hugsaði ég. Hvað ætlar hann að gera við hnífinn?
Ekki var þó vopnið ætlað mér, heldur hurðinni, hann réðist á hurðina með vasahnífnum. Hann var fljótur að missa vitið þessi maður - svellþykk stálhurð sem lét ekki undan neinu - með smákuta! Svo stakk hann hnífnum í falsið á milli stafs og hurðar - og opnaði. Vissi hann alltaf að þetta væri hægt? Var hann bara að reyna mig? Sá hann að ég var öll að koma til og engin von lengur um að ég félli í fangið á honum?
Ég veit ekki enn hvað lyftumaðurinn heitir en ég veit hvaðan hann er. Vestan af fjörðum, þar sem blóðheitum spönskum og frönskum sjómönnum skolaði að landi fyrr á árum. Þeir voru líka með svört augu.
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta var óhugnanleg saga. Smá Barbara Cartland, smá Stephen King með slettu af Sólvallaskóla realisma. Jafnast allt að því við söguna þegar þú hnykktir pulsunni úr kokinu á Gumma Skxx.
Einar Örn S. Hallgríms (IP-tala skráð) 25.10.2006 kl. 22:49
Hjúkk...ég hélt í smá stund að þetta væru þínar síðustu mínútur:S.
Svo hélt ég nú líka að þú værir bara að leika,svo þú gætir fallið í fangið á blóðheitum spánverja.
Komdu nú með söguna af Gumma og pulsunni?
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 26.10.2006 kl. 00:15
Ég veit vel hver þessi lyftumaður er. Hefurðu séð myndina "Speed"?
mýrarljósið (IP-tala skráð) 26.10.2006 kl. 21:01
Nei, er hann útlenskur? Hann talaði örugglega íslensku!
Helga R. Einarsdóttir, 26.10.2006 kl. 21:18
Nú get ég ekki annað en hlegið, ekki nema von þú haldir það enda allt í belg og biðu hjá mér. Maðurinn er íslenskur en í Speed er spennandi lyftuatiði.
mýrarljósið (IP-tala skráð) 30.10.2006 kl. 10:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.