Innbú fyrir milljónir

Það er eitt af því sem ég hugsa um. Einu sinni var mér reyndar sagt að ég "hugsaði of mikið", ætti helst að reyna að hætta því. Kannski voru það mín mestu mistök að fara ekki eftir þeim fyrirmælum?

En ég er alla vega ekki hætt, og það sem ég er núna að hugsa er hvað það kostar ungt nútíma fólk að flytja inní húsið flotta sem er nýbúið að byggja. Ég held að þarfirnar séu stundum meiri en góðu hófi gegnir og ég tala nú ekki um fjárhagslega getu. Þegar við fluttum hér inn var perket ekki til umræðu. Teppi hefðu sennilega verið flottasta lausnin, en fyrir þeim voru bara ekki til peningar. Þá var gólfið annað hvort málað eða skellt á það pappadúk sem var svo látinn duga þangað til hann var orðinn götóttur í gegn. Þá var teppið loksins keypt. Innihurðir voru hreint engin nauðsyn, oftast þó sett ein fyrir klósettið. Hinar komu svo eftir efnum og ástæðum. Eldhúsinnréttingin var "bráðabirgða" og dugði gjarnan í nokkur ár, og eldavélin keypt notuð. Hún dugði svo lengi sem þurfti, eða þangað til það stóra stökk var tekið að fá alvöru innréttingu með eldavél og ofni.

Baðherbergð var yfirleitt að mestu tilbúið, allavega voru þar þau tæki sem þurfti, klósett, baðkar og vaskur. Ekki eins nauið með flísar og annað álíka pjatt.Gluggatjöld voru heldur ekki endilega fyrir öllum gluggum. Reyndar var ég í tvo mánuði í síld á Mjóafirði í okt. nóv að vinna fyrir stofugardínum, sem voru svo hengdar upp fyrir jólin. Það var nokkuð gott. Þrír mánuðir liðnir frá innflutningi, sem fór reyndar fram á meðan ég var fyrir austan. Oft var látið bíða að þilja og ljúka einu eða tveimur herbergjum, börnin ekki stærri en svo að þau gátu verið inni hjá foreldrunum tvö eða þrjú.

Eitt var þó til á flestum heimilum þó þar væri annars ekkert fyrir utan brýnustu þarfir. Sjónvarpið var á sínum stað - svarthvítt og var opnað öll kvöld nema fimmtudagur væri og svo  fékk það líka frí einn mánuð á sumrin. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Þetta var akkúrat svona hjá okkur í U 7 nema litasjónvarp,og lokuð stofa í 3 ár.Bílskúrshurðin okkar stóð lengi fyrir utan eldhúsgluggann...fínasta gardína.

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 24.10.2006 kl. 01:13

2 Smámynd: GK

Hvað varstu að gera í Mjóafirði?

GK, 25.10.2006 kl. 00:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband