22.10.2006 | 20:12
Var þetta líknardráp?
þegar ég hlustaði á fréttir í kvöld datt mér það helst í hug. Afgamall, grindhoraður hvalur, einn að dóla skammt undan landi. Sennilega með einhverja pest og treysti sér þess vegna ekki til að fylgja félögum sínum þegar þeir héldu "suður í höfin". Svo slappur orðinn að hann tók varla eftir því þegar hann varð fyrir skoti. "Einstaklega rólegur" sagði maðurinn. Ef Hvalsmenn hefðu ekki unnið það "afrek" að kála honum hefði hræið líklegast rekið að landi við Snæfellsnes einhverntíman fyrir jólin. En nú fá Japanir að "njóta" þess um hátíðarnar
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Borðum við Íslendingar ekki hval? :)
Gunnar Helgi Eysteinsson, 22.10.2006 kl. 21:04
Jú við gerum það Gunnar, en þeir sögðu að þessi væri of gamall fyrir okkar smekk.kv. ammatutte
Helga R. Einarsdóttir, 22.10.2006 kl. 21:11
Þeir ættu að skammast sín þessi sjávarútvegsráðherra og hvalaforstjóri. Þessar óþörfu hvalveiðar eru sérlega ógeðfelld aðför að orðspori Íslendinga hvar sem þeir eru staddir í heiminum.
Einar Ö.S.H (IP-tala skráð) 22.10.2006 kl. 22:04
Verði japönum að góðu...jakk!
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 22.10.2006 kl. 22:26
Loksins fann ég þig, þetta er leiðinlegur staður, ég fer bara að koma oftar í heimsókn. Ég er miklu fljótari að koma hlaupandi!
mýrarljósið (IP-tala skráð) 23.10.2006 kl. 17:33
Gott að sjá þig, þú getur líka farið beint á "ammatutte.blog.is og það er ekkert löng leið. Annars er líka allt í lagi að þú hlaupir. kv.hre.
Helga R. Einarsdóttir, 23.10.2006 kl. 18:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.