Langur laugardagur

Í heiðskíru veðri og nokkuð köldu ókum við til Reykjavíkur í morgun. Strókarnir stóðu upp af Hellisheiðinni og rútur frá Orkuveitunni voru farnar að flytja forvitna hátíðargesti um slóðana sem nú eru eins og net um alla heiði.  Það var saumadagur á Hraunteig og á meðan fór afinn í skoðunarferð um hverfið með stúlkurnar báðar, aðra í kerru en hina á fæti. Það sem helst þurfti að sýna honum var Sunnubúðin, svo skólinn og allt þar í kring svo var líka litið á pylsuvagninn. Það er margt hægt að sýna á teigunum og í Laugardalnum.

Svo lauk saumaskap uppúr hádeginu og þá fengum við Urði með okkur austur. Fyrst fórum við reyndar í IKEA búðina nýju til að kaupa barnastól. það er nauðsynlegt að eiga svoleiðis stól fyrir barnabörn í heimsóknum.  Ekki ætlaði að ganga vel að komast í þessa búð, endalaus röð af bílum á einni akrein lengst af leiðinni. Og þegar á staðinn kom virtust öll bílastæði full, ég held þau séu 1000 eða meira. En þarna voru bílastæðaverðir sem vísuðu leið að auðum stæðum og það tókst svo vel að heita mátti að við parkeruðum við húsvegg.  Við komumst svo inn og fórum á frekar stuttum tíma í gegnum báðar hæðir og fundum meira að segja stólinn og borguðum hann og allt. Ég viðurkenni alveg að við fórum fram úr nokkrum á þessari leið en alls ekki með neinni frekju, fórum bara aðeins frjálslega með umferðarreglur. Alla vega tók þetta ekki nema hálftíma eða minna. Svo fórum við af stað austur og urðum til að byrja með að fylgja röð á hraða snigilsins, en komum okkur útúr henni við Vífilsstaði og fórum flóttamannaleiðina.

Á sléttunni á milli Hveradala og Kolviðarhóls stóð nú sem hæst vígsluhátið Orkuveitunnar, þar voru fleiri hundruð manns að skála fyrir húskumböldum og röraflækjum sem nú eru um alla heiði. Í tilefni þessara hátíðarhalda þótti engum ástæða til að mótmæla neinu. Einkennilegur tvískinnungur veldur því að maður hefur enga samúð með mótmælafólki yfirleitt, og finnst heldur lítið til þess koma. Þarna  var fullt af bílum, líklega skálað í eplasafa? 

Á leiðinni yfir heiðina fóru fram úr okkur fjórir ökuníðingar, ég náði númerunum og birti þau síðar. Þeir sýndu sinn dólgshátt með ýmsu móti, svínuðu fyrir bíla og fóru yfir óbrotnar línur - tvöfaldar - og fleira þesslegt. Ég útskýri það seinna . Ég gæti trúað að við hjónin munum á næstunni eyða nokkru af helgunum við njósnir á heiðinni. Annað akur en hitt skrifar niður númer og lýsingar á brotum. það verður svo birt á opinberum vettvangi. Nokkur mótmæli? 

Þegar heim kom fórum við beint í afmælisveislu Júlíu Katrínar og þangað kom svo seinna það sem eftir hafði orðið af fjölskyldunni á Hraunteig. Þar voru nú öll börnin okkar og barnabörnin, nú erum við ekki lengur hálf vængbrotin í svona veislum af því að ein fjölskyldan sé í Boston. Nú eru allir með og það er gott. Eftir veglega veislu fórum við svo heim og tókum Einars fjölskyldu með, þau stoppuðu aðeins en fóru svo í bæinn en skildu Urði eftir hún verður sótt á morgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er mjög góð hugmynd Helga. Að birta bílnúmer og tegund ökuníðinga á dritinu er algjör snilld. Væri gaman fyrir foreldra þessara dela að sjá þeirra getið opinberlega. Ég vildi að mér hefði dottið þetta í hug þegar einhver blaðaljósmyndari á svörtum Ford Expedition með númerinu tveir bókstafir 699 lagði fyrir mig um daginn. Hann var þvílíkt dónalegur, en ég gat ekki stokkið á eftir honum því dóttir mín var í bílnum.

Einar (IP-tala skráð) 22.10.2006 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband