20.10.2006 | 22:30
Barnamynd?
Ég var að koma úr bíó. Við fórum að sjá Mýrina í Selfossbíó kl. 20.00. Mér fannst heldur fátt í salnum, átti frekar von á að þar væri fullt hús. En ég er víst ekki sú sem hef mest vit á því hvaða myndir Sunnlendingar vilja sjá. En á þessari sýningu var einn gestur sem fékk alla mína athygli, lítið barn, varla ársgamalt var þar, sennilega með mömmu sinni og vinkonu hennar. Ég alla vega vona að þetta hafi ekki verið barnapíur útivinnandi móður.
Þetta litla síli var alveg til friðs lengst af, grenjaði smávegis tvisvar en ekki svo að til vandræða yrði. Kannski er þetta bara venjulegt í bíóhúsum, ég bara gamaldags og geri mér enga grein fyrir þörfum og kröfum ungbarna. En væri þá ekki nær að fara með þau 4 eða 6 bó? Annars var myndin fín og allt í lagi að mæla með henni.
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Guð minn góður! Hvað er eiginlega að fólki að fara með svona ungt barn í bíó! Það hefur ekkert gaman af bíói svona lítið og alls ekki af Mýrinni sem er ekki beint barnamynd. Ég er alveg stórhneyksluð sko!
Josiha, 20.10.2006 kl. 23:58
Af hverju var mér ekki boðið með? Ég held að við höfum ekki farið saman í bíó síðan á Rain Man seint á níunda áratug síðustu aldar.
GK, 21.10.2006 kl. 01:29
mér finnst ömurlegt þegar fólk gerir svona. Meina svona fólk skemmir bíómyndir fyrir öðrum. Að auki finnst mér þetta ekki vera gott uppeldi á barni, þó svo ég hafi kannski lítið vit á börnum, þá myndi ég ekki ala barnið mitt svona upp.
Guðmundur Marteinn Hannesson, 21.10.2006 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.