" Þrúgur reiðinnar"

Ég er byrjuð að lesa þessa bók einu sinni enn. Ekki veit ég hvort það er í tíunda eða tuttugasta sinn, en ég las hana fyrst þegar ég var barn í sveitinni. það eru nokkrar bækur sem ég þarf alltaf að lesa öðru hvoru."Dittu mannsbarn", helst einu sinni á ári, "Híbýli vindanna og Lífsins tré", "Myndin af Dorian Grey" og "Snjór í sorg". Tvær þær síðastnefndu, las ég líka margoft þegar ég var krakki og tókst með klókindum að ná þeim með mér þegar ég flutti að heiman. Allar eru þessar bækur heldur dapurlegar, ég veit ekki hvers vegna þær höfða meira til mín en annað sem ég hef lesið, og gleymt jafnóðum. það er sálfræðinga að segja mér það. Ef ég ætti að segja hvað ég lesi helst myndi ég líklega segja að það væri "þjóðlegur fróðleikur" og annað sem ég get séð fyrir mér að hafi einu sinni gerst. Svona "einu sinni var" bækur. Ég hef líklega lesið heil ósköp um ævina, samt geri ég það sjaldan nema þegar ég er komin uppí rúm á kvöldin, en þá er það líka algert "möst"´

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Bókin Salka Valka sem ég fékk í fermingargjöf er eina bókin sem ég hef byrjað á 10-20 sinnum,les alltaf hálfa en get aldrei klárað.Mér þykir hún skemmtileg og verð að klára einhverntímann!

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 19.10.2006 kl. 23:50

2 identicon

hæ..frænka. skemmtileg síða hjá þér, gaman að fylgjast með grúskinu í fortíðinni... Ekki skal mig undra að sumar bækur skulir þú lesa oft, þetta geri ég gjarnan. Þessa dagana er ég að dunda mér við að lesa bækur Arnalds Indriðasonar hreint stórgóðar bækur. Ég les líka gjarnan "Austan við sól" bæði bindin... það ættir þú að lesa úr því að "híbýli vindanna", sem mér finnst hreint frábær, er ein af þessum góðu til að lesa aftur og aftur. sjáumst..bestu kveðjur til þín Maddý

Maddý (IP-tala skráð) 20.10.2006 kl. 19:54

3 Smámynd: Helga R. Einarsdóttir

Takk fyrir komuna Maddý,gaman að fá góða gesti. "Austan við sól" hef ég líka lesið, en ekki þó aftur og aftur.

Helga R. Einarsdóttir, 20.10.2006 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband