19.10.2006 | 21:07
Spræk á fimmtudögum
Fimmtudagar eru góðir dagar. Það byrjaði reyndar í morgun eins og aðra daga á því að ég labbaði í vinnuna og nú er orðið svo kalt að ég fer í kuldabuxurnar. Það bítur svo skrambi mikið í lærin í gallabuxunum. Í fyrstu tveim tímum erum við í leikfimi og í dag eftir upphitun fengum við að fara í badminton ( það heitir hnit á íslensku). Þegar búið var að setja upp netið og para saman kom í ljós að einn var stakur. Svo að kennarinn gæti einbeitt sér að leiðsögn og dómgæslu spurði hann mig hvort ég vildi vera með og auðvitað vildi ég það. Einu sinni æfði ég þessa íþrótt með fullorðnum og hef alltaf gaman af að vera með. Þagar fimm mínútur voru eftir af tímanum spurði kennarinn hvort ég væri að gefast upp en það var nú aldeilis ekki, heldur færðist ég í aukana eftir þaví sem á leið. þetta eru tvær kennslustundir saman, svo ég fékk þarna góða byrjun á deginum.
Eftir nestistímann voru svo tveir bóklegir tímar sem liðu í friði og spekt, en svo var einn tími í sundi og þá fer ég alltaf ofaní, eins gott að gera það bara eins og að hanga á bakkanum. Eftir dágott sund fengum við svo að hvíla í pottinum. það er alveg einkennilegt með þessa stráka, það er fullt af pottum, en þeir elta mig alltaf eins og lömb í þann pott sem ég vel. Jafnvel þó hann sé svo heitur að þeirra litla kjöt verði gegnum soðið á engri stund. Ég er með svo mikið kjöt að ég þoli meira og hef reynt að segja þeim það og að þeir ættu frekar að fara eitthvað annað, en það er árangurslaust, þeir vilja vera hjá mér. Og mér finnst það nú reyndar bara gott, ætli ég verði ekki að fórna mér í kaldari pott til að koma í veg fyrir að þeir sjóði til skaða. Eftir hádegi er svo einn danstími, sem ég missti nú reyndar af að hluta vegna ófyrirséðra atvika. En við enduðum svo daginn í einum stofutíma og þar urðu mikil afköst á stuttum tíma.
Svona var nú þessi dagur í skólanum.
Mér finnst aulalegt að heyra fjölmiðlafólk tala um "kvali". Þá meina þau hvali sem við Hrunamenn lærðum að bera fram með allt öðrum hætti.
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Á alveg að ganga frá ömmunni!
Jæja, er nú hvalur borinn fram eins og Hvammur?með svona hái...
Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 19.10.2006 kl. 23:47
Já einmitt með hái, ekki samt hgalur, heldur hvalur. Þeir sem verstir eru í hreppamennskunni sleppa vaffinu en setja lint g í staðinn. Kv. ma.
ammatutte (IP-tala skráð) 20.10.2006 kl. 17:54
Frábært!!!!!!!!!!
Það er alltaf hlegið að mínum hv framburði, þetta er víst "skaftafellssýsluíska".
mýrarljósið (IP-tala skráð) 23.10.2006 kl. 17:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.