19.7.2007 | 18:29
Hvernig er þetta með hana Ingibjörgu Sólrúnu?
Getur verið að ég hafi misst af einhverju? Stendur til að við tökum Palestínu í fóstur?
Hver einasti fréttatími byrjar á ýtarlegri lýsingu á því sem konunni finnst um eitt og annað. Eins og hún geti eitthvað gert í því? Ég trúi því varla. Þarna hefur engum tekist að reisa rönd við árum saman, getur verið að hún sé almáttug?
Einhvernvegin finnst mér að nær væri fyrir utanríkisráðherra á frumstigi að "kynna" sér eitthvað sem nær okkur stendur. Hvað með að skoða þróun innflytjendamála á hinum Norðurlöndunum?
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.7.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 197629
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Heyrðu, litla myndavélin er hérna heima. Svo að þú þarft ekki að taka myndir frekar en þú vilt. Við Dýrleif Nanna röltum á eftir út á tún og smellum nokkrum myndum
Josiha, 19.7.2007 kl. 18:32
Of seint lesið, en það er allt í lagi. Við skruppum og ég tók nokkrar myndir og er búin að senda, bæði til þín og Guðm. Þetta er fín hola, bara örgrunnt niður á fast. Fyrsti happadrátturinn í byggingunni.kv.
Helga R. Einarsdóttir, 19.7.2007 kl. 19:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.