Byggingarreitur í miðju vegarstæði?

Það er eins gott að fara að drífa í þessum blessuðum Suðurlandsvegi. Ef það dregst lengi gæti þurft að rífa hús eða finna annað vegarstæði.  Á Norðlingaholti er nú verið að byrja á húsi sunnan við veginn sem þrengir allmikið að, og þau gætu orðið fleiri og nær veginum áður en við er litið. Kannski þarf að fella skóg við Rauðavatn til að koma veginum fyrir. En ekki er það nú "náttúruvænt" að fella svona stór og falleg tré. Það væri líka hægt að byggja brú yfir Rauðavatn? Svo eru aspirnar við Hólmsá sem plantað var fyrir nokkrum árum. Þær eru nú orðnar bærilega stórar og flestar í miðjum tvíbreiðum veginum. Þetta stefnir í eintómt vesen. Tvöfaldur vegur á kannski ekki að byrja fyrr en í Lögbergsbrekkunni, eða ætti bara færa hann á einhvern allt annan stað? Einu sinni lá kaupstaðarleiðin frá Kolviðarhóli með hlíðunum og ofan vatna niður að Grafarholti. Æ- þar er allt orðið fullt af húsum og enga smugu að finna. Hvað með Krýsuvíkurleiðina? 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

já og tré í vissri hæð má ekki fella en það er nú víst alltaf hægt að finna smugu á öllum lögum.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 11.4.2007 kl. 19:09

2 Smámynd: Josiha

ÉG var hér

Josiha, 11.4.2007 kl. 21:16

3 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

hér var Ég

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 11.4.2007 kl. 22:03

4 Smámynd: GK

Var Ég hér?

GK, 11.4.2007 kl. 22:25

5 Smámynd: sludur

Hvar er ég?

sludur, 12.4.2007 kl. 00:04

6 Smámynd: Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu...

Ha ha það vantar ekki húmorinn í liðið hér að ofan

Vonandi fékkstu ekki hjartaáfall við það að sjá langömmubarnið hangandi á hurðarhúninum.

Óskum eftir lýtaaðgerðum á því.

Guðbjörg drithöfundur Helga,Sigurdórs og Helgu..., 12.4.2007 kl. 17:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband