17.2.2007 | 20:24
Lögreglustjórinn í Reykjavík
Hann lofar góðu. Það er helst á honum að skilja að ökuníðingar eigi skilið að fá rassskell og það fleiri en einn og tvo. Gott hjá honum. Bara spurning hvort hann á eftir að reka sig á veggina sem kerfiskarlarnir hafa hlaðið allt í kringum sig? Vonandi tekst honum sem best að fá stuðning til að taka á þessum óþjóðalýð.
Svo var annað til umræðu hér áðan. Þegar maður fer með notuð föt í rauðakrossgáminn, þá lenda þau væntanlega hjá umræddum rauðum krossi, en hvað svo? Fara þau öll til útlanda? Ef mig langar til að gefa útigangsmönnum á Íslandi föt, hvert á ég þá að snúa mér? Mér finnst alltof mikil áhersla lögð á útlönd í hjálparstarfi hérna. Við eigum því miður sjálf fullt af fólki sem er hjálpar þurfi, en fáum litlar vísbendingar um hvernig við getum orðið því að liði.
Í þriðja lagi: Af hverju í ósköpunum gátu þeir ekki haft Spaugstofuna á undan í kvöld, og geymt Jón Ólafsson þangað til á eftir. Jón er góður, en það eru bara svo miklu fleiri sem horfa á Sp.st. Börn og gamalt fólk og svo ég sem er enn frekar léleg og verð örugglega sofnuð uppúr tíu.
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.8.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 197639
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.