5.2.2007 | 20:21
Hér er göltur um gölt
frá gelti til galtar. Í fréttum sjónvarps allra landsmanna áðan var verið að segja frá svínabrúðkaupi í útlöndum. það er svo margt sjálfsagt í útlöndum þó við kunnum það ekki hér. þetta var "falleg" athöfn og allir voða hamingjusamir. Fréttamaðurinn sagði að eigandi "göltsins", og þá væntanlega svaramaður, hafi verið ánægður með tengdadótturina, eða eitthvað svoleiðis. Ég tók reyndar ekki mikið eftir niðurlaginu af því ég sat með göltinn fastan í eyrunum. Ég hefði viljað vera í brúðkaupinu með "eignda galtarins", en mér var ekki boðið.
Um bloggið
Hér slettir Helga skyrinu...
Tenglar
Barnabörnin
Dritarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.8.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 197646
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já, maður ætlast til að fréttamenn tali rétt.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 5.2.2007 kl. 20:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.