Færsluflokkur: Dægurmál

Að bjarga sér í Bónus

Það er enginn leikur að fara í Bónus núna á úrslitasprettinum, en það varð ég nú samt að gera í dag, og var ein á ferð.

Öll bílastæði full og hörkufrost úti. Ég dokaði því við þar til ég sá stæði losna, "rétt við búðarvegginn", henti mér inní það og varð harla glöð. Hefði ekki boðið í að keyra körfu fulla alla leið fram á Vallholt eins og ég sá fólk gera. Jafn gott að ekki sé þar mikið í sem ekki má frjósa. 

Ég tók einu körfuna sem var í boði við innganginn, hefði sjálfsagt getað fundið aðra einhversstaðar í nálægum götum, en þessi dugði, ég var jú alein og réði ekkert við meira.

Búðin var full af fólki og raðir að kössunum lengst inneftir öllu, alveg inn fyrir fiskbúðinginn og grænu baunirnar- hálfa leið inní kæli.

Ég komst fljótlega að því að ómögulegt var fyrir eina manneskju að ferðast þarna um og safna varningi til jólanna. Komst þó inní kæli og þaðan út aftur í sjálfvirkri röð og náði því sem handleggirnir tognuðu til í hillunum. Þetta var ekkert að gera sig. Ég fór því áfram og alveg að enda raðanna löngu. Þar valdi ég mér eldri hjón sem stóðu og studdu sig við eina körfu, og lagði fyrir aftan þau. Svo spurði ég konuna hvort ég mætti ekki bjóða henni að styðja sig við körfuna mína? Hún leit á mig, bara aðeins hissa, en svaraði svo játandi- það vildi hún alveg þiggja :-). Þetta var gott- konan studdi sig alveg óháð manninum, sem var sjálfsagt orðinn hundleiður á búðaferðinni. Karfan mín þokaðist áfram í röðinni og ég hljóp um alla búð og dró í búið það sem hugurinn girntist.  Þegar því var lokið mátti heita að við, fólkið og ég, værum orðin fremst í röðinni. Það getur verið alveg ljómandi gaman að versla í jólaösinni, en það er satt að segja heilmikil ös og margir á ferð.

Ég gat líka glatt tvo ókunnuga menn fyrir utan þegar ég bauð þeim að fá körfuna mína- þegar ég væri búin að tæma hana í bílinn- sagði að það væri örugglega engin önnur í boði þessa stundina.

Þegar ég kom heim, stóð ég góða stund á tröppunum og otaði bíllyklinum - fjarstýrða að útihurðinni- en ekkert gerðist.

En ég er eiginlega búin að kaupa allt sem þarf. 

 


Vansvefta þingmenn

Mér finnst að menn sem hanga á vinnustaðnum langt fram á nætur og mæta svo kannski aftur um hádegi ef þeir þá yfirleitt mæta, séu þess engan veginn umkomnir að ráðskast með fótaferð eða háttatíma annarra landsmanna. Þeir vita varla nokkuð um svefnvenjur sinna eigin barna og hæpið að eiginkonurnar vaki eftir þeim til að ræða þau mál.           Svo eru þær og krakkarnir farin í vinnu og skóla löngu áður en "húsbóndinn" rumskar.

Einn klukkutími til eða frá breytir engu, það er  heilbrigt líf og reglulegur svefn sem skiptir máli.  

Væri kannski reynandi að taka upp einhverskonar "vökulög" á alþingi, t.d. að allir eigi að  vera mættir kl. 8.00 og farnir heim kl. 18.00.  Ef ekki væri með þessu móti hægt að komast yfir það sem þarf að gera mætti jafnvel stytta jóla, páska eða sumarfrí?          Það væri nær að skoða það. 

Það hlýtur að vera  hægt að finna eitthvað þarfara  málefni til að vekja athygli á tilveru sinni þarna við Austurvöllinn.


Veikur sjúklingur?

Ansans vesen, en gott samt að hægt var að skjótast hér niður á jörðin með "veika sjúklinginn". Vonandi batnar honum sem fyrst og verður fullfrískur -- sjúklingur?
mbl.is Farþegaflugvél lenti með sjúkling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í daglegu amstri

Langt síðan ég hef skrifað hér eitthvað frá eigin brjósti.

Eigin brjósti?  Þá er líklega ekki átt við beinlínis brjóst - og varla einu sinni brjósthol? Frekar undarlega til orða tekið þegar verið er að meina hjartað- alla vega tel ég að meiningin sé sú, að maður skrifi frá hjartanu. 

Það hefur bara svo ósköp lítið verði að gerast undanfarið, svo litlu hefur verið frá að segja. Ég er auðvitað í skólanum eins og áður. Á mínum aldri fer maður ekki að bröltast í að breyta um vinnustað, sérstaklega ekki þegar maður unir sér eins og best má verða. Ef allt fer sem horfir, heilsan sýnist í lagi og allt verður með felldu, get ég fengið að vinna í skólanum í hérumbil fjögur ár enn.

Fjögur ár eru nú samt ekki lengi að líða, svo óhjákvæmilega er ég farin að hugleiða hvað ég ætti að taka mér fyrir hendur að þeim loknum. Þegar þetta berst í tal þá segja allir "þú verður nú ekki í vandræðum með það, allt fullt að gera í starfi eldri borgara". Örugglega er það alveg rétt. Ég heyrði í dag af vinkvennahóp sem væri í vandræðum með að finna tíma til að hittast af því þær tvær sem komnar eru "á aldur" væru svo uppteknar að engin leið væri að ná í þær.

En ég er sem sagt farin að hugsa, og jafnvel undirbúa aðeins. Þó ég geti ekki lengur verið starfsmaður í skóla er enginn sem segir að ég geti ekki gert eitthvð annað. En hvað ætti það að vera. Til að komast að því fór ég í rannsókn. Ekki svona eins og hjá læki með blóðprufu og myndatöku eða yfirheyrslum í tilfellinu einhverskonar heilabilun. Neei- eg fór í áhugasviðspróf, rándýrt próf. Mér hefur nefnilega dottið eitt og annað í hug, sem ég gæti alveg hugsað mér að gera. Ég gæti alveg opnað hannyrðaverslun, kann vel að hekla og prjóna og sauma með ýmsu móti. Lærði meira að segja einu sinni vefnað ásamt mörgu öðru nytsamlegu í Húsó Reykjavík. Auk þess finnst mér gaman að smala saman peningum og það er gaman að hitta fólk. Allt ætti þetta að ganga, einmitt á þeim tíma sem Ísland verður að rísa úr öskunni eftir  þrjú til fjögur ár. Verst að það vantar svona búð hérna NÚNA, hættan er sú að einhver verði á undan mér.

Svo var það þetta með Njálulesturinn. Að lesa Njálu og aðrar hundleiðinlegar fornbókmenntir, með, eða fyrir framhaldsskólanema. Lesa með tilþrifum sem gætu þá kannski haldið greyunum vakandi og eitthvað sæti kannski eftir í heilabúinu.En tilþrifin þurfa þá auðvitað að vera nokkuð góð, ég geri mér alveg grein fyrir því.

Svo ætla ég auðvitað að skrifa ævisöguna mína. Verst að ég er eiginlega langt komin með hana, alveg fram yfir miðja ævi(sem ég miða alltaf við 50). það tekur enga stund að ljúka þeirri sögu, svona eins og mér er fært, svo verða bara aðrir að ljúka. Af því mér finnst ævisaga eigi að vera svoleiðis, segja frá ævinni frá upphafi til enda. 

En ég get svo auðvitað líka skrifað sögur um einhverja aðra, kannski  ævisögur  forfeðranna eða bara ættanna minna, svona eins og hægt er.      "Saga Asthon fjölskyldunnar" er mér alltaf minnisstæð.

En sem sagt, til að fá úr því skorið hvað af þessu hentar mér best tók ég þetta próf. Margar blaðsíður af spurningum um allt mögulegt- nærri 300 spurningar minnir mig.

Það var fjöldamargt undarlegt sem þarna var spurt um, en sjálfsagt kemur það allt að gagni og ég er bara spennt að fá niðurstöðuna. Auðvitað tekur þetta smá tíma,  það er ekki kastað til höndunum við úrvinnslu svona merkilegrar könnunar. Kannski segi ég ykkur frá úrslitunum þegar þar að kemur, þetta er spennandi.


Nú datt mér eitt í hug!

Af því að allt er í klessu í pólitíkinni og næstum sama hvað gert verður  við hana í framtíðinni datt mér í hug hvort ekki mætti breyta svolítið til í næstu kosningum, hvenær sem þær verða. Hvernig væri að fólki byðist einn kostur í viðbót við venjulega flokkakosningu- þetta venjulega 
  xG -XS - XD eða B.   Þar væri bara ein lína fyrir XÞ sem þýddi þjóðstjórn. Sú stjórn yrði svo skipuð með handafli af einhverjum  lögskipuðum dánumönnum? Ef ég ætti kost á svona kosningum núna myndi ég setja x við Þ. Alltaf dettur manni eitthvað í hug!


Nú gerist kannski eitthvað?

Kannski fara þau nú að reyna að gera eitthvað fyrir okkur, þessa venjulegu Íslendinga.
En það verður ekki gert fyrir "fólkið í landinu" - neei- það verður gert fyrir atkvæðin.
Sem s. til að reyna að bjarga eigin skinni. Við þekkjum þetta orðið.
mbl.is Fylgi ríkisstjórnarinnar hrynur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúkrahús eða banka

"Við munum ekki reka mörg fullbúin sjúkrahús á Íslandi"- en hvað með bankana?
Hvað eru reknar margar "fullbúnar" bankastofnanir á Íslandi? Eru þær allar nauðsynlegar?


mbl.is Sjúkrahúsin þurftu uppskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við Selfoss?

Uppi á Lyngdalsheiði, Hellisheiði og í upppsveitunum? Fjandinn fjarri mér að það sé "við Selfoss". En það er þó allt í lagi að vara við hálku, virðist alltaf koma á óvart, enda veðurskyn fólks oft og tíðum harla bágborið. En þegar ég fer að rúnta um vegina "við Selfoss" kem ég hvergi nærri þessum heiðum, heldur ek um Flóann og kannski uppá Skeið eða út í Ölfus.
mbl.is Flughált við Selfoss - 2 bílveltur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju er að fagna?

Mér finnst svona "fagn" með sigurglotti og armslætti ekki viðeigandi á þessum vettvangi, né öðrum þar sem fólk er að veljast til, eins og manni er sagt, "efiðra ábyrgðarstarfa í þágu samfélagsins". Snýst þetta kannski ekki bara um erfiða vinnu heldur jafnvel um þægilega stöðu sem gefur vel af sér? Eru einhverjir eiginhagsmunir í spilinu?
mbl.is Gylfi endurkjörinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var nokkuð fjölgað þarna umfram efni?

Mig langar svolítið til að vita hvað margir störfuðu hjá þessu fyrirtæki árið 2002 og hvernig þeim gekk að sinna hlutverki sínu sem skyldi? Hlutverkinu að sjá um veitumálin og tengda þjónustu við borgarbúa. Er það annars ekki hlutverk Orkuveitunnar?
mbl.is „Erfið stund fyrir marga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hér slettir Helga skyrinu...

Höfundur

Helga R. Einarsdóttir
Helga R. Einarsdóttir
Netfang: hresk@mi.is

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • DSCF2187
  • DSCF2186
  • DSCF2180
  • DSCF2214
  • DSCF2208

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband